Been there... broke that!

þriðjudagur, maí 31, 2005

Barkakýli og uppskurðir!

Ohh ég þoli ekki barkakýli!! Ég á afskaplega erfitt með að horfa beint á þau og finnst eiginlega bara óþægilegt að tala við mann með barkakýlið hoppandi upp og niður! HROLLUR! Ég fæ í alvörunni verk í allan líkamann og æðarnar á handarbökunum á mér bókstaflega tútna út. Ég er skrítin, ég veit en svona er þetta bara!

Annað sem ég þoli ekki og það er t.d. í hádegismatnum í vinnunni þegar fólk fær allt í einu þörf fyrir að ræða t.d. uppskurði, magasár, kransæðastíflur, krabbamein, heilaæxli o.s.frv. við matarborðið! Úff, ég get ekki borðað í kringum þetta. Nú er þetta ekki eitthvað sem gerist endilega á hverjum degi en þetta finnst mér ofsalega óþægilegt! Ég skal tala um þetta hvenær sem er en ekki á meðan ég er að borða, takk fyrir!


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters