Been there... broke that!

miðvikudagur, apríl 13, 2005

Þvílík blíða!

Sit hér í vinnunni næstum því grátandi því mig langar svo að fara út í góða veðrið. Laumaðist út í sjoppu áðan því sykurþörfin sagði til sín og brá bara þegar ég kom út. Ég gat varla haldið augunum opnum fyrir sólargeislunum og svo var algjört logn. Mig langar í sumarfrí!

Þetta var að koma í pósti:
Í tilefni sólarinnar bjóðum við uppá afmælisís uppá þriðju hæð klukkan 15:30 í dag.

Jæja, ég fæ þá allavega ís í sárabætur! Lítið í fréttum, er í mikilli blogglægð þessa dagana. Dagurinn í gær var reyndar góður. Skrifstofustjórinn í vinnunni minni spurði mig hvernig mér litist á að fara á aðra deild í sumar og taka að mér ábyrgðarmeiri verkefni. Auðvitað líst mér þrusuvel á það, bæði að fá meiri reynslu og líka að mér skuli vera treyst fyrir því, alveg frábært bara :) Rikki er byrjaður í sinni nýju vinnu og líkar vel, allt er bara í bullandi hamingju *brosibros*!


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters