Been there... broke that!

mánudagur, apríl 18, 2005

Smá breytingar

Ég er búin að vera að prófa mig áfram með breytingar á síðunni en mér finnst aldrei neitt jafnflott og þetta upprunaleg. Kannski af því að ég er konan sem breytir ekki til. Ég hræðist breytingar!

Vikan lítur vel út, kannski vegna þess að hún inniheldur bara þrjá vinnudaga. Það er auðvitað sumardagurinn fyrsti á fimmtudaginn og svo er starfsdagur í leikskólanum hjá Andreu á föstudaginn.. frábær vika :) Fínt að fá sumarið loksins en það er svo fyndið að það fyrsta sem mér dettur í hug þegar sumardagurinn fyrsti er nefndur erum við Hildur ca. 13 ára að labba í Þróttheima í kraftgöllum... hmm góður sumardagur það ;) Ohh, those were the days......

Jæja, vinna vinna.... (eða eitthvað)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters