Been there... broke that!

mánudagur, apríl 11, 2005

Jú jú....

Ég er lifandi. Helgin búin að vera róleg. Kíkti til Hildar á föstudagskvöldið með upptöku af American Idol. Við grétum svo saman yfir úrslitunum ;)

Á laugardaginn fór ég með Andreu Ósk í Hreyfiland sem var algjört æði. Þetta er íþróttaskóli fyrir krakka og hún var í 2-3 ára hóp. Við ætlum að sjá til hvort við færum okkur yfir í 3-4 ára hópinn því hún verður náttúrulega 3 ára eftir tæpan mánuð skvísan. En já, hún naut sín vel þarna og fór meira að segja að gráta þegar tíminn var búinn, þvílík var sorgin.

Við fjölskyldan fjölskylduðumst svo í gær úti um allar trissur. Fórum í Kringluna, Ikea og Rúmfatalagerinn. Við keyptum hitt og þetta smádót. Ég keypti mér nýtt hnífasett, hnífapör og pottaleppa. Andrea græddi prinsessutösku fyrir Barbiedótið sitt, skál og glas með mynd af Svampi Sveinssyni og Rikki fékk einhver kerti sem honum fannst svo góð lykt af hahaha, allir sáttir bara :)Svo var auðvitað stoppað til að gæða sér á sunnudagsísnum, alveg frábær dagur í alla staði :)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters