Been there... broke that!

laugardagur, apríl 30, 2005

Emma öfugsnúna

Í dag er ég öfugsnúin. Þegar ég hugsa út í það þá er ég búin að vera öfugsnúin í nokkra daga. Einhvernveginn ekki í vondu skapi, ekki góða skapi... bara ekkert. Ekki misskilja, ég er ekki búin að sitja og stara út í loftið. Ég er búin að vera með fólki, hlæja, drekka kaffi, vinna... og vera eins og venjulega en inni í mér er einhver lægð. Kannski kemur þetta einstaka sinnum hjá öllum og er jafnvel bara nauðsynlegt.

Ég er orðin lasin. Ég er að drepast úr háls/eyrnabólgu. Ég veit ekki alveg hvað ég á að kalla þetta. Alltaf þegar ég fæ hálsbólgu þá leiðir hún upp í eyrun líka, það er orðið frekar þreytt. Já, svona er þetta og eins og glöggir lesendur muna þá er ég á leiðinni á "djammið" í kvöld. Það hefur reyndar aðeins breyst. Ég tók ákvörðun um að vera edrú þar sem ég er slöpp og nenni ekki að vera þunn, verð bara á bíl. Ég er að fara að hitta Júlíu ofl heima hjá Írisi eftir ca. klukkutíma en ég ætla bara að láta kvöldið leiða í ljós hvort ég nenni á tónleikana, ég held að ég lifi það alveg af að missa af þeim þó það hefði verið gaman að sjá þá. Við sjáum til.

Við erum með næturgest í heimsókn en það er hún Kristjana Rún bróðurdóttir hans Rikka. Þær Andrea eru nánast alveg jafngamlar en Kristjana er 15 dögum eldri. Þær eru ofsalega miklar vinkonur og ná vel saman. Rikki er búinn að vera góður við mig og sjá alfarið um stelpurnar í mestallan dag. Ég lagði mig og svona... en vaknaði eiginlega öfugsnúnari en áður. Núna líður mér ágætlega bara og ég ætla að fara að mála mig og gera mig hæfa til að fara út úr húsi. Ég veit ekki hvort það tekst en ég reyni allavega ;)

Hafið það gott í kvöld börnin mín.


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters