Been there... broke that!

þriðjudagur, apríl 05, 2005

Crazy in the brainhouse!

Djísús hvað er mikið að gera hérna í vinnunni. Ég hef varla litið upp úr pappírum í gær og í morgun en það lítur út fyrir að það verðir rólegt núna eftir hádegi. Ballið byrjar svo aftur á morgun...

Maja þú hafðir rétt fyrir þér með Scott í American Idol. Hann er greinilega hættulegur maður miðað við það sem maður les í blöðunum. Mér fannst hann alltaf virka svo saklaus og hélt í alvörunni að hann væri eitthvað eftir á eða þroskaheftur... svona er maður nú grænn haha!

Já, eigum við ekki bara að hafa þetta TV-blogg?

Survivor: Ég held eiginlega ekki með neinum því ég er ekki búin að ná að kynnast fólkinu almennilega. Finnst ótrúlega merkilegt að sami ættbálkurinn sé búinn að tapa ALLTAF! Og finnst það hrikalega leiðinlegt fyrir þau greyin. Ég held að ef ég ætti að velja einn til að halda með núna þá væri það Steph. Finnst hún dugleg og skemmtileg.

ANTM: Eins og er held ég með Evu, Yaya og Ann. Finnst þær æðislegar :) Amanda má alveg hverfa ofan í jörðina fyrir mér. Guð minn góður hvað manneskjan er pirrandi!! Mér fannst Cassie ótrúlega sæt og flott en er fegin að vera laus við vælið í henni.

American Idol: Of margir eftir til að halda með einhverjum einum. Mér finnst Nadia með risahárið rosalega flott en röddin hennar er ekki alveg að passa í öll lögin, hún er samt með flotta rödd. Vonzell (hræðilegt nafn) var geðveik í síðasta þætt þannig að ég hef tekið hana í sátt. Mér fannst Bo Bice geggjaður fyrst... en ég get ekki horft á hann án þess að finnast hann vera skítugur :/ Hinir finnst mér bara allir jafngóðir eiginlega.....

Held að það séu ekki fleiri raunveruleikaþættir sem ég horfi á... man það ekki. Allt í drasli er reyndar fínn, maður fær góðar hugmyndir og svo er alltaf gaman að hafa eitthvað til að hneykslast á. Maður er jú alltaf svo fullkominn sjálfur!


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters