Been there... broke that!

fimmtudagur, mars 10, 2005

White Noise.

Við Júlía turtildúfurnar skelltum okkur í bíó í gærkvöldi. Okkur langaði mest að fara á Hide and Seek með Robert De Niro en fyrst það var ekki byrjað að sýna hana varð White Noise fyrir valinu. Í fyrsta lagi vil segja namm namm, ég var búin að gleyma hvað Michael Keaton er sætur :þ Í öðru lagi vil ég segja að ég mæli ekki sérstaklega með henni... jú... ég var mjöööög spennt, átti erfitt með mig á köflum og langaði heim til mín... en það er bara ég! Myndin skildi í rauninni ekki mikið eftir sig, ég var ekki einu sinni hrædd og taugaveikluð á leiðinni heim :/ Júlía þakkaði bara fyrir að hafa ekki þurft að borga sig inn á hana, hún átti nefnilega boðsmiða. Ég geng nú kannski ekki svo langt... hún var FÍN.

Í kvöld ætla ég að elda hakk og spaghetti, þvo þvott, baða Andreu, svæfa Andreu og glápa svo á American Idol.. er þetta ekki áhugavert? Fólkið sem mig langar svo að fara að hitta bráðum fyrir utan þetta venjulega er Hafliði, Jenný og Ester, langt síðan ég hef hitt þau :)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters