Been there... broke that!

laugardagur, mars 05, 2005

Urrrrrr!!!

Ég er mjög óánægð með úrslitin í Idol. Mér finnst að Heiða hefði átt að fara, finnst meira að segja að hún hefði mátt fara fyrir löngu síðan! Æ, ég er í fýlu út í Idol og hlakka ekkert til að fara næsta föstudag í Smáralindina. Þetta jafnar sig, Hildur Vala tekur þetta... annars er eitthvað virkilega mikið að!!!

Sparnaðarnámskeiðið var fínt. Fengum margar mjög góðar hugmyndir sem við ætlum að nýta okkur. Svo var eiginlega verið að sýna manni hvað maður er að borga óhugnalega mikið í vexti o.s.frv. Mjög fróðlegt... og eiginlega bara pínu óþægilegt! Það eina sem ég myndi segja að væri galli við námskeiðið er að það hafa það svona að kvöldi, það var ekki búið fyrr en að verða 23 og ég var eiginlega bara geispandi í lokin :/

Jæja, ætla að kíkja eitthvað út í góða veðrið :)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters