Mánudagur til mæðu..?
Alltaf hressandi að byrja vikuna á því að læsa lyklana inn í bílnum og koma þar af leiðandi of seint í vinnuna. Jájá, mikið fjör. Fór með Andreu á leikskólann eins og vanalega en aðeins í seinna laginu, enda bara eðlilegt að vera pínu seint á ferð á mánudögum. Ég ákvað að skilja bílinn eftir í gangi bara svona svo ég kæmi inn í hann heitan nokkrum mínútum seinna. Þegar ég ætla mér svo að gera það þá er djö bílinn læstur!!! Urrrrr, hvernig í ósköpunum gat það gerst hugsaði ég með mér. Ég meina, ég lokaði hurðinni hjá mér þegar ég fór út, labbaði hinum megin við bílinn og opnaði hurðina hjá Andreu og lokaði henni svo. Hvernig gat allt í einu verið læst?!?!? Ég hljóp að sjálfsögðu inn á leikskólann aftur, hringdi í Rikka og skipaði honum að koma með aukalykilinn að bílnum. Á meðan ég stóð úti og beið eftir honum komst ég að þeirri niðurstöðu að ég hlyti bara að vera í falinni myndavél... þannig að ég stóð bara þarna og actaði kúl haha, þið vitið, lét eins og mér væri skítsama ;) Rikki kom svo loksins og ég gat lagt af stað í vinnuna. Ég hef samt komist að þeirri niðurstöðu núna að þetta hafi ekki verið falin myndavél því þá hefði ég verið látin vita af því.. en ég neita að trúa því að bíllinn hafi bara læst sér sjálfur?!?! Það hljóta einhverjir óprúttnir aðilar að vera hér á ferð... og hana nú!!!
Bloggarar
Litlir bloggarar