Been there... broke that!

mánudagur, mars 14, 2005

Mánudagar!

Hvað er málið með mánudaga? Af hverju er ómögulegt að vakna snemma og vera ferskur á mánudögum?!? Ég snooza alltaf svona 5 sinnum oftar á mánudögum en öðrum dögum, fussumsvei! Alltof mikið af orðinu mánudagur hérna.... já þeir sökka!

Mig er líka búið að dreyma svo mikið undanfarið. Dreymdi í nótt að það væri kona að fæða barn í rúminu mínu en barnið kom aldrei, bara piss (geðslegt, ég veit) og svo dreymdi mig að ég væri að kreista bólur á frænku minnu (sem er reyndar ólétt) og ég veit ekki hvað og hvað. Jú, líka að ég væri að rífast við Hildi vinkonu um stjórnmál. Við vorum að rífast um hvort Sigrún Bragadóttir væri góð stjórnmálakona eða ekki. Hún Sigrún Bragadóttir er nú bara kona sem vinnur með mér og er eins og stendur í fæðingarorlofi.. ég veit ekki hvernig ég tengdi hana við stjórnmál :/ Þetta er furðulegt þegar ég fer að pæla í því:

1. Kona að fæða.
2. Ólétt kona.
3. Kona í fæðingarorlofi
.

Mér finnst þetta frekar magnað, ég er líka óvön því að muna drauma svona vel. Ég get tengt þetta við ýmislegt þannig að þetta er forvitnilegt.

Já... og til hamingju Hildur Vala. Ég er ótrúlega ánægð með úrslitin :)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters