Been there... broke that!

þriðjudagur, mars 29, 2005

Frekar furðulegt...

Ég svaf mjög illa í nótt og vaknaði allavega 6 eða 7 sinnum útaf engu. Mjög óþægilegt! Þegar ég fór svo á fætur kl. 7:30 í morgun var opið út á svalir... ég man einmitt mjög vel eftir því að hafa lokað þeim og dregið fyrir áður en við fórum að sofa í gær. Nei nei, það var bara galopið út og gardínurnar alveg uppi! Ég vakti Rikka og spurði hann hvort hann hefði opnað út í nótt en hann kannaðist ekki við það. Hmmm.. ég veit ekki hvað á að halda. Það er allt á sínum stað ennþá, fartölvan okkar er ennþá á stofuborðinu alveg við svaladyrnar... og líka allt annað. Ég held að mér finnist líklegast að Rikki hafi labbað í svefni og opnað út... ég held að það hljóti að vera!

Annars ekkert í fréttum, finnst glatað að vera búin í fríi eins og væntanlega öllum öðrum. Annars er ég bara kát og glöð! Rikki er að byrja í nýrri vinnu eftir viku með miklu hærri laun og svona þannig að við förum bráðlega að kíkja á íbúðamál, gaman gaman :o)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters