Daginn daginn...
Eruð þið aldrei hrædd um að eitthvað stökkvi eða skríði upp úr klósettinu á meðan þið sitjið á því? *hrollur* Ég veit ekki af hverju en ég hef verið svona í ca. 10 ár... alltaf vör um mig á klóinu. Ímynda mér helst að það stökkvi rotta upp úr því og bíti í bossann á mér, jæks!
Mamma átti afmæli í gær blessunin, orðin 43 ára ellismellur ;) Annars hef ég nú oftar fengið þau viðbrögð að ég eigi svo unga mömmu. Hún var samt tvítug þegar hún átti mig, jafngömul og ég var þegar ég átti Andreu. Ætli hún fái ekki að heyra það þegar hún verður á mínum aldri hvað mamma hennar er ung (og sæt;)) ofkors!!;) Ég er allavega búin að troða mér í fisk til hennar í kvöld og hlakka mikið til, svo kemur Hildur í American-idol-heimsókn í kvöld... gaman saman :o)

Bloggarar
Litlir bloggarar