Bjútífúl...
Ég fór réttum megin framúr í dag þannig að ekki örvænta, þetta verður ekki fýlufærsla :)
Ég sofnaði kl. 20 í gærkvöldi. Það var yndislegt! Ég var öfugsnúin í gær, bæði var ég illa sofin og svo fannst mér öll heimsins vandamál hvíla á herðum mér. Æ, þið vitið... maður tekur svona daga. Suma daga bara miklar maður allt fyrir sér sem yfirleitt er ekkert mál. Þannig var gærdagurinn minn. Þið ættuð öll að vera fegin að ég sofnaði snemma í gær og hringdi ekki í ykkur....
Í dag kl. 16 fer ég svo í NUDD! Mmmm ég hef aldrei á ævinni farið í nudd áður þannig að ég er svona spennt og kvíðin í bland. Ég fæ svo oft hausverk vegna vöðvabólgu og er alveg að bilast á því. Það bara gengur ekki lengur og sérstaklega ekki ef það á að fara að gera Parkódín lyfseðilsskylt :/ Það er það eina sem virkar á mig. En ég hef fulla trú á því að nokkrir nuddtímar geti lagað þetta, svo verður maður bara að passa líkamsbeitinguna.
Svo er um að gera að versla í Krónunni frekar en í Bónus. Það er Krónunni að þakka að þetta verðstríð er í gangi :o)

Bloggarar
Litlir bloggarar