Been there... broke that!

föstudagur, mars 18, 2005

Atsjú!

Ég er svo kvefuð að ég held að ég hætti bráðum að anda. Já, það virðast fáir sleppa við þessa leiðindapest sem er búin að vera að ganga. Ég er reyndar ekkert lasin, bara kvefuð þannig að hér sit ég í minni vinnu og bíð eftir að dagurinn líði. Það fyrsta sem ég geri þegar ég fer héðan er að fara í apótek (ekki bakarí nei) og kaupa mér nefsprey og svoleiðis. Svo fer ég með litlu prinsessuna í klippingu á eftir..gaman gaman :o)

Hildur kom í heimsókn til mín í gærkvöldi og við gláptum á American Idol, ég held að við séum dómharðari en þessir dómarar nokkurntímann haha :) En það er líka skemmtilegt. Við erum nokkuð sammála um að stelpan með mikla hárið og hann Bo Bice séu best.. mér finnst þau alveg bera af, allavega í gærkvöldi. Við sátum svo og kjöftuðum aðeins frameftir enda erum við stöllur ekki búnar að hittast og tala saman face 2 face í svona 2 mánuði, ótrúlega lélegar vinkonur, ætli þetta sé ekki bara met á þessum 11 árum sem við erum búnar að vera vinkonur já svei mér þá!

Kristín OUT!
(sjitt hvað ég er kúl)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters