Been there... broke that!

föstudagur, febrúar 11, 2005

Sorrý, ég verð!!

Sáuð þið American Idol í gær? Vá, þetta var frábær þáttur. Rosalega margir góðir og aðrir sem maður skildi ekki hvað voru að gera þarna. Eins og stelpan sem gat ekki lært texta... halló... þá geturðu ekki orðið söngkona!!! En mér fannst alveg æðislegt þegar Paula og Simon fóru að rífast þvílíkt og það þurfti að kalla á einn framleiðandann inn í málið. Málið var að Simon og Randy viltu ekki að einhver strákur héldi áfram en Paula vildi það endilega. Hún vildi meina að Simon væri að þvinga Randy til að segja nei því hann þolir ekki þennan gaur. By the way þá stóðu 3 strákar fyrir framan þau og enginn vissi hvern af þeim þau væru að rífast um. Framleiðandinn kemur Paulu í skilning um að svona sé þetta bara tvö NEI og eitt JÁ þýði einfaldlega NEI. Hún verður fúl og Simon glottir og svo hleypir hann einum stráknum áfram en sendir hina heim. Þegar þeir fara af sviðinu segir hann við Paulu "Come here" og svo faðmast þau. Hann hafði sem sagt hleypt stráknum áfram fyrir hana. Æ, mér fannst þetta svo fallegt og hann svo yndislegur!!! Ég gæti borðað hann!!!


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters