Komin með topp!
Jebb, ákvað að klippa á mig topp í gærkvöldi. Við Júlía fórum heim til Írisar að hitta Guggu því hún ætlaði að klippa Júlíu. Þá allt í einu fékk ég þá hugdettu að klippa mig líka. Fyrst ætlaði ég að klippa það stutt... eða allavega styttra... kannski niður á háls. En svo sá ég hvað Júlía var sæt og fín með topp að ég gat ekki stillt mig. Manni líður vel með topp :) Finn núna að ég var búin að sakna þess. Ég lét svo gera aðeins meiri styttur í allt hárið líka. Ég kom svo við í vinnunni hjá Hildi til að sýna henni meistaraverkið og henni leist rosa vel á. Rikki sagði svo þegar ég kom heim að þetta væri besta klippingin sem ég hefði haft síðan við kynntumst. Hmmm það er nú reyndar ekki hægt að segja að ég hafi breytt mikið til ;)
Er það rétt sem ég heyri að America´s Next Top Model sé að fara að byrja aftur í næstu viku?? :)
Er það rétt sem ég heyri að America´s Next Top Model sé að fara að byrja aftur í næstu viku?? :)
Bloggarar
Litlir bloggarar