Helgin
Helgin var hin besta. Á föstudagskvöldið horfðum við Júlía og Hildur á Idol á Catalínu. Brunuðum svo á Ölver í hléinu til að hitta Jennýju og Unni mömmu hennar. Já, ég veit. Ég hangi bara á snobbstöðum bæjarins ;) Ég var búin að gleyma að Ölver væri til, kom þangað einu sinni eða tvisvar þegar ég var ca. 17 ára og lét ljós mitt skína í karaókí ;) Ég ákvað nú að sleppa því í þetta skipti! Þetta var annars frábært kvöld, alltof langt síðan ég hef hitt Jennýju... fann hvað ég saknaði hennar. Alveg frábært líka að hitta mömmu hennar í leiðinni, hún er svo yndisleg! Ég tók nokkrar myndir (reyndar bara fjórar en þetta er allt að koma) og þær eru komnar inn í albúmið mitt góða ;)
Mér leist ekkert á úrslitin í Idolinu ef ég á að segja eins og er. Er búin að hugsa um þetta og finnst Helgi miklu betri en bæði Ylfa og Lísa. En svona er þetta... hann stóð sig illa eitt kvöld og fékk að fjúka. Mér fannst Davíð Smári æðislegur en Hildur Vala stóð sig langbest af þeim öllum. Vá, ég fékk þvílíka gæsahúð. Hún hlýtur að vinna þetta, ég trúi ekki öðru!!

Bloggarar
Litlir bloggarar