Been there... broke that!

mánudagur, janúar 10, 2005

Teikni teikn....

Hér sit ég í vinnunni minni og það er eiginlega ekkert að gera. Ég er búin með morgunverkefnin þannig að nú er bara að bíða eftir hádegismatnum og svara símanum ef hann hringir :)

Laugardagskvöldið var undarlegt. Rikki ákvað að fara í keilu og fá sér einn tvo öllara, ég var bara ánægð með það, ætlaði að hafa það kósí með sjálfri mér. Já, ég ákvað að laga eina könnu af pressukaffi... sem breyttist svo í þrjár þegar líða fór á kvöldið ;) Þetta er í fyrsta skipti á ævinni sem ég hef drukkið kaffi ein, annars drekk ég það aldrei nema þegar ég fer á kaffihús eða í heimsókn til vinkvenna minna. Aldrei í vinnunni einu sinni. Jæja, mér fannst það bara notalegt þambaði kaffi og talaði við Maju á MSN og Hildi í símann til skiptis... algjörlega ofvirk ;) Maja benti mér svo á að koma að teikna á www.isketch.net já ég ákvað að prófa, ekki mjög spennt því ég er ekki mikið fyrir leiki. Jæja, ég prófaði og VÁ þetta er nýja uppáhaldið mitt!! Ég er orðin algjörlega húkt á þessu, samt hef ég aldrei unnið. Það munaði nú litlu í gær, ég var alveg að vinna þegar Maja ákvað að það gengi nú ekki og tók til sinna ráða og vann mig ;) Minn tími mun koma!

Já, þessu hékk ég í nánast alla nóttina á milli þess sem ég kjaftaði við Hildi í símann. Hún var föst heima með lungnabólgu greyið. Rikki kom svo heim milli 4 og 5 og ég var glaðvakandi í kaffivímu og í fýlu yfir því að allir væru hættir að teikna og farnir að sofa, bölvaður mórall bara ;) Við fórum þá loksins að sofa og það var ekki mjög auðvelt að vakna með litlum skæruliðum kl. 10 morguninn eftir ónei... fór svo aftur á isketch í gærkvöldi og býst við að eyða næstu kvöldum/vikum þar hehe ;) Eins gott að við keyptum okkur fartölvu um daginn, þvílíkur lúxus :)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters