Been there... broke that!

föstudagur, janúar 14, 2005

Spennandi...

Ohh mér líður bara eins og litlu barni að bíða eftir jólunum! Jebb, Idol í kvöld og ég get ekki beðið!!! Íris og Júlía koma að horfa með mér og svo langar mig að kíkja eitthvað í bæinn, á Prikið eða eitthvað bara í rólegheit. Kaffi og kjaft.... jafnvel einn öllara ef vel liggur á mér ;) Ég er í æðislegu skapi í dag og vona að það haldist já bara sem allra lengst. Akkúrat núna vildi ég að ég ætti milljón, þá myndi ég kaupa mér föt fyrir 990 þúsund og fara svo í klippingu og strípur!! ;)

Sit núna heima með veika snúllu. Ég var að vinna fram að hádegi en kom þá heim og tók við af Rikka. Ég ætla að þrífa og gera æðislega kósí og fínt eins og ég geri alltaf á föstudögum. Ég er vön að gera það á milli 5 og 7 en núna get ég drifið í því strax, litla dúllan á eftir að hjálpa mér ef ég þekki hana rétt ;)

Hafið það gott lömbin mín :o)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters