Been there... broke that!

fimmtudagur, janúar 20, 2005

Sjónvarpsblogg eiginlega....

Vá, ég missti röddina í gær. Ég veit ekki hvað kom fyrir en um kvöldmatarleytið fannst mér ég finna fyrir einhverjum hnúti í hálsinum og um kl. 22 var röddin farin. Samt er ég ekki með hálsbólgu. Spes. Hún er ekki komin aftur almennilega.. en þetta er bara svolítið töff, viskí-sjóarafílingur í gangi ;)

American Idol byrjar í kvöld. Mikið er ég glöð, það er eiginlega miklu skemmtilegra en þetta íslenska. Það er annars byrjaður einhver leikur í vinnuni, svona veðmál um hver vinnur þetta (íslenska). Við fengum póst og áttum að velja þann sem við höldum að vinni, svo verða einhver verðlaun fyrir þá sem gátu rétt. Ég valdi Hildi Völu því mér finnst hún hafa langbestu röddina... þannig að það er eins gott að hún standi sig ;) Annars finnst mér Helgi líka rosalega góður, svo öruggur með sig og með rosa rödd :) Þetta verður spennandi!

Eru einhverjir fleiri að horfa á The Apprentice? Úff, hvað ég vona að Kelly taki þetta, hann er svo miklu betri en hin gellan sem ég man ekki einu sinni hvað heitir... Jen... eða eitthvað. Hlakka til að horfa á úrslitaþáttinn á sunnudaginn. Svo er Bachelorette að klárast líka, hélt að úrslitaþátturinn hefði átt að vera í gær en það var einhver upprifjun bara (að sjálfsögðu) þannig að það verður þá líklega næsta miðvikudag. Ég get ekki alveg ákveðið mig þar en ég held að ég haldi með Matthew, mér finnst hann svona meiri sjarmur.

Annars get ég ekki beðið eftir næstu seríu af Survivor. Þættirnir eiga víst að breytast svo mikið, held að þetta verði þrususería. Hún getur allvega ekki orðið mikið leiðinlegri en sú síðasta úff....


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters