Jæja þá....
...ætli ég bloggi ekki aðeins. Ég hef reyndar ekki svo mikið að segja en við skulum sjá hvað gerist.
Kíkti aðeins á útsölur í gær. Aðallega samt fyrir fyrir stelpuna og fundum á hana útigalla, buxur og bol. Vorum svo orðin svo svöng að við skelltum okkur á Pizza Hut. Æ, ég veit að ég er leiðinleg en voðalega er þjónustan alltaf misheppnuð þarna. Við biðum í tæpan klukkutíma eftir matnum og þá var pizzan hans Rikka lítil en ekki millistærð. Við vorum ekki að nenna að bíða eftir nýrri þannig að við létum þetta bara duga. Svo er þetta alveg RÁNdýrt!! Ég veit það og hef alltaf vitað það en samt fer ég alltaf aftur þangað, maturinn er svoooooo góður!!
Í kvöld verður gaman því ég er að fara að hitta Jennýju og Beggu. Það er svo langt síðan ég hef hitt þær og við skemmtum okkur alltaf svo vel saman :) Begga er að fara að flytja til Parísar þann 10. janúar í óákveðinn tíma... er að fara að búa hjá sínum heittelskaða :) Ohh svo rómantískt....
Hildur mágkona mín var að flyta til Litháen í fyrradag með familíuna... vonandi gengur allt rosalega vel. Ég er búin að fá smá fréttir í gegnum tengdó og það virðist allt vera bara alveg frábært hjá þeim. Þau fóru út af borða ofsa góðan mat og það kostaði 700 kr. íslenskar. Þau versluðu líka allt í matinn fyrir u.þ.b. 2.000 kr. íslenskar. Ekkert smá ódýrt þarna!! Það er spurning hvort maður skelli sér ekki í helgarferð til þeirra í vor... kominn tími til að Rikki fari út, orðinn 26 ára gamall og aldrei farið til útlanda fussumsvei ;)

Bloggarar
Litlir bloggarar