Been there... broke that!

föstudagur, janúar 07, 2005

Hvítir sófar og Idol.

Hvernig er hægt að eiga bæði barn og hvítt sófasett? Þá meina ég hvernig getur sófasettið haldist hvítt með barn inni á heimilinu? Er þetta kannski ekkert mál, er ég bara klikkuð? Ég horfi löngunaraugum á öll ljós sófasett en alltaf laumast sú hugsun að að ég geti aldrei átt svona sófa... ekki fyrr en öll mín börn eru farin að heiman.... Þið sem eigið svona sófasett, segið mér draumaráðið.. mig langar svo í svona. Er komin með ógeð á leðri! Og það þýðir ekkert að segja mér að vera bara dugleg að þrífa, ég er dugleg að þrífa.... en ég nenni ekki að þrífa sófasettið mitt oft í viku.

Það er Idol-dagur í dag. Aðallega svona feik-idoldagur því þetta er ekkert alvöru þáttur. Það er bara verið að tala við þessa 10 keppendur sem verða í Smáralindinni. Ég ætla mér nú samt að horfa á þetta og hún Júlía kemur í heimsókn og gerir það með mér, svo verður farið í vikulega Catalinu heimsókn en við höfum ekkert farið síðan fyrir jól. Svo byrjar American Idol næsta fimmtudag, já ég sagði FIMMTUDAG! Mér finnst það glatað, eru þá tveir Idol-dagar í röð??? Ég vona að þessu verði breytt þegar íslenska idolið er búið í byrjun mars. Idol hefur alltaf verið á föstududögum og þannig vil ég hafa það.... :(



Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters