Hahahahaha :)
Jiii, hvað American Idol var fyndið! Ég elska þessa þætti, þeir eru miklu skemmtilegri en þessir íslensku! Ég tók reyndar þáttinn upp því ég hafði ekki tíma til að horfa á það strax. Það var reyndar eitthvað in the back of my mind sem sagði mér að upptakan hefði mishepnast. Jú, hún gerði það en ég náði að horfa á þetta á Stöð 2+. Missti reyndar af fyrstu 20 mínútunum en þetta er pottþétt endursýnt. Gellan í lok þáttarins var þvílík SNILLD! Hélt hún í alvörunni að hún kynni að syngja??? Svo tjúllaðist hún þegar hún komst ekki í gegn og fór að segja frá röddunum í hausnum á sér og ég veit ekki hvað og hvað. Svo ætlar hún bara að fara í snyrtingu og hárgreiðslu.... guð minn góður, ég myndi aldrei treysta þessari manneskju fyrir skærum hahahaha ;)
Í kvöld er svo Icelandic Idol yes, það er alltaf skemmtilegt og ég held með Hildi Völu og Helga. En auðvitað kýs maður bara eftir því hvernig þau standa sig. Það er víst diskó þema í kvöld og Páll Óskar gestadómari. Bara alveg eins og í fyrra hmmm... en það var bara gaman, Páll Óskar er fínn gaur.. ég sá hann einmitt í fyrradag úúú ;)
Það er eitthvað smá húllumhæ hérna í vinnunni sem byrjar kl. 16. Það eru nefnilega 6 manns minnir mig búnir að eiga afmæli á síðustu 30 dögum þannig að það á að halda upp á það. Verður boðið upp á bjór og léttvín og snarl. Ég á pantaðan tíma í klippingu og strípum kl. 17:30 þannig að ég verð ekki lengi allavega... loksins verð ég aftur alveg ljóshærð... þetta er búið að vera púl.

Bloggarar
Litlir bloggarar