Áfram Ísland og Matthew :)
Ég gerðist ofurdugleg á mánudagskvöldið og skellti mér í Body Pump. Ég er ekki búin að fara síðan fyrir jól einhverntímann. Íris kom með mér, hún er nefnilega að hugsa um að kaupa sér kort og vildi svona prófa þetta fyrst. Henni leist bara súpervel á þettta, svo kannaðist hún við Unni, kennarann okkar. Já, þá var hún víst í Langholtsskóla en ég man ekki eftir henni þaðan þó mér hafi alltaf fundist ég kannast við hana. Hún er nú líka 6 árum eldri en ég þannig að það er kannski ekkert skrítið. Það var alveg frábært að fara aftur en VÁÁÁ ég er að drepast úr harðsperrum, ég hef aldrei fengið svona harðsperrur af Body Pump áður, það hlýtur að þýða að ég hafi tekið vel á :)
Sjónvarpskvöld í kvöld. Fyrst er landsleikur í handbolta sem maður verður nú að kíkja á. Trúi ekki öðru en að við tökum þetta núna, er það ekki Kúveit sem við spilum við í kvöld? Svo byrjar tvöfaldur þáttur af Bachelorette kl. 21. Áfram Matthew :) Svo á ég samt eftir að vorkenna Ian svo mikið ef hann tapar. Ég er ekki í lagi. Það var vandamál fyrir mig þegar ég var yngri (og er stundum enn) að láta mig horfa á svona keppnir því á meðan fólk fagnaði sigurvegaranum þá sat ég miður mín og vorkenndi þeim sem tapaði... þetta hefur samt aðeins minnkað með árunum ;)

Bloggarar
Litlir bloggarar