Been there... broke that!

laugardagur, janúar 08, 2005

Don´t worry, be happy :)

Ég er búin að vera í svo góðu skapi þessa vikuna, sérstaklega seinustu svona 3 daga. Ég veit ekki af hverju, þetta er mjög furðurlegt. Þá er ég ekki að meina að það sé eitthvað sjaldgæft að ég sé í góðu skapi, ég er það nú yfirleitt. En málið er að það hefur einhvernveginn ekkert komið mér úr jafnvægi, stress, erill í vinnunni... alveg sama.. ég er alveg róleg með bros á vör :) Kannski er þetta af því að ég er svo ofsalega sátt við vinnuna mína... nýtt ár komið og svona :)

Við Júlía ákváðum að beila á Idolinu í gær því það var hvort sem er bara upprifjun og við fórum á Kaffi Vín um kl. 20:30. Ótrúlegt en satt þá fengum við þetta fína borð. Vá, hvað er skrítið lið sem hangir þarna, þetta er bara svona samansafn af furðufuglum, ótrúlega fyndið að fylgjast með því. Við kíktum svo yfir á Prikið á Jennýju, Beggu og Beggu hina. Þangað komu svo Anna María frænka Jennýjar og Mist vinkona hennar. Þær voru flestar að fá sér í glas en við Júlía bara í kaffinu, ég verð sko miklu hressari af kaffi heldur en áfengi *skjálf* ;)

Í kvöld ætla ég að taka því rólega fyrir framan Stevie the TV.


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters