Veikindi.
Litla skottan er búin að vera lasin í gær og í dag. Er búin að vera með tæplega 39 stiga hita greyið, samt svo kát eins og venjulega :) Ég var með hana heima í gær og Rikki í dag... vonandi verður hún orðin góð eftir helgi. Hún er sko að missa af jólaballinu sem verður á leikskólanum hjá henni í dag :( Æ, voða leiðinlegt. Hún hefur aldrei farið á jólaball.
Get ekki beðið eftir helginni annars. Þá verður ALLT klárað. Öllu pakkað inn, jólakort sett í póst og helst bara keyrt út með pakkana líka. Svo verður bara slakað á til jóla. Það er einmitt komið á hreint að við verðum hjá ömmu og afa um jólin. Mmmm nú er ég fyrst farin að hlakka til, þekki ekki jólin án þeirra :)
Idol - wild card í kvöld. Flott að hafa 3 stráka, alltof lítið af strákum komið. Ég veit ekkert með hverjum ég held. Bara þeim sem stendur sig best í kvöld. Júlía kemur að sjálfsögðu í sína vikulegu Idol-heimsókn og svo mætum við galvskar á Catalinu til að horfa á úrslitin. Þannig að þið vitð hvar mig verður að finna eftir kl. 21:30 í kvöld :)
BÆBÓ!

Bloggarar
Litlir bloggarar