Been there... broke that!

mánudagur, desember 27, 2004

Tíminn líður...

Ótrúlegt alveg hvað tíminn líður hratt. Ég verð einmitt 23 ára eftir rúman mánuð eða þann 4. febrúar. Ég ákvað í gær að ég ætla að djamma á afmælinu mínu þar sem það ber upp á föstudegi. Ótrúlega merkileg ákvörðun! Ætli ég djammi nokkuð fyrr en þá næst, ætla ekki að gera neitt á gamlárskvöld nema kúra bara mmm svo er ég í fríi 3. janúar líka :)

Jólin eru búin að vera fín, fyrir utan að ég vaknaði með hrikalega flensu á aðfangadag... ég át ibufen eins og nammi allan daginn og varð fín af því ;) Ég fékk æðislegan hring frá Rikka, gæti ekki verið ánægðari með hann :) Litla rassgatið fékk hátt í 30 pakka, þótti ekki leiðinlegt að opna þá ;) Jii, jólin verða svo skemmtileg þegar maður á barn, það er alveg yndislegt :)

Æ, ég hef ekkert að segja þannig að ég sit bara og reyni að finna eitthvað til að skrifa, spurning um að sleppa því þá frekar...... hafið það gott yfir hátíðarnar :)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters