Survivor!!!
Hvað er málið með Survivor? Þetta er hundleiðinleg sería! Ég fann mér allavega einn af þessum leiðinlegu til að halda með og það var Sarge.... en svo var honum hent út :( Eftir voru ennþá leiðinlegri keppendur og ég veit ekkert með hverjum ég á að halda. Núna eru eftir Chris, Eliza, Twila og Scout. Ég veit að ég held hvorki með Twilu né Scout, þær eru óþolandi!! Eliza er með geeeðveikt creepy augu, ég á erfitt með að horfa á hana!! Chris?? Æ, ég veit það ekki jú jú, ég er pínu fúl út í hann fyrir að hafa svikið Sarge og ég vildi að hann hefði kosið Twilu út á mánudaginn í staðinn fyrir Julie. En hann er alls ekki leiðinlegur, mjög klár... og er búinn að vera klókur að koma sér áfram þannig að ég held að ég haldi með honum bara!
Ég missti af The apprentice á sunnudagskvöldið. Vill einhver segja mér hver datt út? Ég held að þátturinn sé nefnilega ekki endursýndur. En ef hann er það vil ég eiginlega frekar sjá hann. Æ, vitið þið eitthvað um þetta mál?

Bloggarar
Litlir bloggarar