Been there... broke that!

mánudagur, desember 06, 2004

Að springa!!!

Vááá ég borðaði svooo mikið í hádegismatnum áðan að ég get eiginlega ekki hreyft mig. Ég er svona aðeins að venjast því að vera í mötuneyti sko ;) Ég borðaði 3 skálar af blómkálssúpu og 2 grillaðar samlokur með skinku og osti *spring*!!!

Annað mál á dagskrá er það að ég hef áhyggjur af sjóninni minni. Mælið þið með einhverjum góðum augnlækni? Ég er hætt að sjá á götuskilti og svoleiðis og ég fæ mikinn hausverk fyrir framan sjónvarpið og tölvuna og þarf alltaf að píra augun... nei... ég held að það sé ekki eðlilegt. Býst við að þurfa gleraugu til að vinna með.....

Litla systir er að fara að syngja í Seljakirkju í kvöld og ætlum við familían að fara þangað og senda henni smá styrk... hún á eftir að standa sig eins og hetja :D



Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters