Been there... broke that!

fimmtudagur, desember 30, 2004

Spámiðillinn:

Já, hún sagði ýmislegt. Júlía var reyndar í tímanum á undan mér og það gekk svona glimrandi vel þannig að ég er ekki frá því að hún hafi verið þreytt eftir hana. Þar passaði bara allt upp á hár! En hér er sumt:

*Hún sá að ég á eina stelpu og maðurinn minn eina. Hún sá að Andrea er farin að skipta sér af því hvaða fötum hún fer í út hehe og sagði að hún væri ofsalega mikið ákveðin ;)

*Hún sá að ég er ofsalega mikið að syngja og hefur langað að læra söng, segir að ég eigi að drífa mig í kór, var einmitt að hugsa um það um daginn.

*Hún sá eitt barn í viðbót og að það væru svona 1-2 ár í það EF svo langt! Það yrði strákur.

*Hún spurði mig hvort ég væri búin að hafa löngun til að fara í hjúkrun, það passar. Hún sagði að ég ætti að gera það því það hentaði mér vel, hún sá það samt ekki fyrir sér gerast fyrr en eftir 5-7 ár.

Æ, svo sá hún margt margt fleira sem ég nenni ekki að telja upp. Ég var í heildina litið mjög sátt við hana en fann að ég hefði viljað lengri tíma...

Maturinn á Hótel Borg var líka fínn. Ég pantaði mér nautalund. Ég verð reyndar að segja að ég hef allstaðar fengið betri nautalund en þetta. Æ, þetta var eitthvað hálf bragðlaust því miður! Fórum svo á Hressó og kláruðum kvöldið yfir kaffi og slúðri :) Voða næs bara. Á morgun og á mánudaginn er ég í fríi and i love it :)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters