Been there... broke that!

miðvikudagur, desember 29, 2004

Spennó kvöld :)

Ég er loksins að fara þangað í kvöld sem ég er búin að ætla lengi og það er til hennar Magneu spámiðils á Ægisíðunni. Allir sem ég veit að hafa farið til hennar hafi verið 100% ánægðir og ég vona svo sannarlega að hún verði í stuði í kvöld ;) Júlía ætlar líka. Hún fer kl. 18 og ég kl. 18:45. Við ætlum ekki að láta þar við sitja, við ætlum að eiga skemmtilegt kvöld og skella okkur út að borða á Hótel Borg beint á eftir! Ég er jú búin að eiga gjafabréf á Hótel Borg síðan í janúar og þar sem það gildir bara út árið 2004 þá fannst mér tilvalið að nota það í dag.... 29. desember 2004 hehe ;) Alltaf á síðustu stundu ;) Ætli við skellum okkur ekki svo bara á kaffihús eftir það og höfum það "rómó". Þetta verður sannkallað lessukvöld muhahahaha ;)

Hvað er annars málið með að Idol verði ekki næst fyrr en 14. janúar??? Er eitthvað að 7. janúar eða??? Ohh ég er pirruð!!! Mér finnst þetta mórall :(


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters