Pirr pirr!!!
Ó pirruð mjög ég er!! Var að komast að því eða öllu heldur fatta að ég var á fyrirframgreiddum launum hjá bankanum þannig að það verður tekinn fullur skattur af mér núna næstu mánaðamót! Hversu ömurlegt er það??? Ég er brjáluð!
Svo var eitthvað annað sem ég var ógeðslega pirruð yfir og ég man bara ekkert hvað það var!! En ég finn að ég er ennþá pirruð yfir því!! Hversu pirrandi er það???
Svo fór ég til augnlæknis í morgun loksins. Kom í ljós að ég er með -0,75 á báðum augum og þarf að fá gleraugu. Fegin er ég, þá kannski hætta þessir hausverkir. Er alltaf svo þreytt í augunum. Augnlæknirinn sagði að ég þyrfti bara að nota þau þegar ég væri að reyna á augun, þyrfti ekki að hafa þau þegar ég færi í göngutúr. Ég hló nú bara og sagði honum að það væri engin hætta á að ég færi í göngutúr ;)
En allt í lagi, segjum það okei bæjó!

Bloggarar
Litlir bloggarar