Been there... broke that!

mánudagur, desember 13, 2004

Loksins..

Jæja, þá erum við búin að kaupa allar jólagjafirnar. Loksins. Mér finnst frábært að vera búin að öllu svona fyrir miðjan desember. Yfirleitt er maður í þvílíku stressi á Þorláksmessu og á eftir að gera helminginn.... en ekki ég... ekki í ár :) Reyndar eigum við eftir að kaupa handa Andreu og Töru en það er ekkert stress. Erum búin að ákveða hvað það verður þannig að það þarf bara að skjótast að kaupa það. Kláraði líka að skrifa jólakortin í gær... ég fór til Kristínar að sækja þau á laugardaginn ;) Sendi þau svo bara í dag eftir vinnu. Allt að smella bara :)

Ég hélt í morgun að botnlanginn í mér væri að springa. Var með þennan þvílíka verk hægra megin í kviðnum og búin að vera með síðan kl. 5 í morgun. Ég ákvað nú að fara í vinnunna og fara svo bara ef ég myndi versna. Ég hef ekki versnað neitt en kannski ekki skánað heldur. Ég finn ekki fyrir neinu þegar ég sit en það er vont þegar ég labba. Þá getur þetta ekki verið botnlangabólga er það? Væri verkurinn þá ekki stöðugur? Kannski eru þetta bara vindverkir ;) Eins og Rannveig heimilisfræðikennari sagði einu sinni við mig þegar mér var illt í maganum hjá henni í 5. bekk:

"Reyndu bara að prumpa, Kristín mín."


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters