Gengur vel :)
Mér líkar alveg rosalega vel í nýju vinnunni. Allir bara voða hressir og skemmtilegir og ég var fljót að læra aðalatriðin. Í fyrramálið er svo föstudagskaffi sem er víst alltaf á föstudagsmorgnum og mér líst ekkert smá vel á það. Ég ELSKA morgunmat! Æ, annars hef ég ekkert svo mikið að segja um þetta allt saman því ég er svo nýbyrjuð... en ég get allavega sagt að mér líst þrusuvel á þetta!
Ég var að baka smákökur áðan. Ohh maður er svo jóló, hengdum einmitt upp afganginn af jólaskrautinu í fyrrakvöld... komin með seríur í gluggana og soddan. 22 dagar til jóla. Það lítur líka út fyrir að við verðum bara þrjú hér saman á aðfangadagskvöld. Í fyrsta skipti á ævinni verð ég ekki hjá ömmu og afa á Tunguveginum. Við Rikki höfum líka verið þar síðan við byrjuðum saman en í ár ætlum við að borða heima og fara svo til ömmu og afa í smá heimsókn þegar við erum búin að opna pakkana og svoleiðis. Ég þarf bara að kynna mér hvernig á að elda kalkún... æ þetta verður bara spennandi :)

Bloggarar
Litlir bloggarar