Been there... broke that!

mánudagur, desember 20, 2004

Ekkert MSN...

Þið sem eruð frávita af áhyggjum vegna þess að ég er ekki inni á MSN í dag getið róað ykkur niður. Ég er á annarri tölvu í dag vegna þess að mín tölva var með einhverja fxxxxxx stæla við mig!!! Yfirmaðurinn er kominn í frí þannig að mér var hent á skrifstofuna hennar. Haldið þið að það sé nú? Búin að vera hér í tæpar 3 vikur og strax orðinn deildarstjóri ja hérna hér. En allavega þá er enginn MSN messenger á þessari tölvu og ég get ekki downloadað, það er bannað! Sambandslaus verð ég því í dag börnin mín ;)

Ég fór á laugardagskvöldið í heimsókn til mágkonu minnar. Ohh það var geggjað. Ég var komin til hennar kl. 21 og var ekki komin heim fyrr en kl. 03:30. Við hefðum sko alveg getað kjaftað lengur samt ;) Við pöntuðum okkur pizzu og rákumst svo á þessa fínu rauðvínsflösku inni í skáp og stútuðum henni he he ;) En þetta var voða kósí, ég á eftir að sakna hennar og þeirra allra þegar þau flytja út... sem er bara eftir 2 vikur úff.......

Vááá, hvað er stutt til jóla. Þetta er ótrúlegt. Ég elska að vera búin að öllu nema pakka inn gjöfum, það er líka bara gaman. Að dunda sér við að pakka inn gjöfum, borða konfekt og horfa með öðru auganu á imbann mmmm það er lovlí.

Það er svo mikið að gerast í lífinu hjá vinkonum mínum þessa dagana. Sumt gott og sumt ekki svo gott. Ég held að Júlía sé sú eina sem er ekki með eitthvað í gangi... er bara svona "same old" eins og ég. En ég vil senda elsku Hildi minni góðar kveðjur.... she needs it! Vertu sterk dúllan mín.....



Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters