YEAH BABY :)
Síðasti dagurinn minn í KB banka. Ég þarf aldrei aftur að gera upp sjóðinn minn, leggja saman dagmiðana mína, raða stofnum í möppur... sko fyrir utan náttúrulega í dag því dagurinn er ekki búinn ;) Ohh þetta er yndisleg tilfinning.. svo er ég í fríi fram á miðvikudag, haldiði að það sé lúxus? Ég ætla að nota tímann í að föndra, taka til og baka mmmm og líka kíkja í heimsókn í elsku gamla Kringluútibúið mitt og hitta alla aftur *sakn*.
Það var hringt í mig frá nýja vinnustaðnum í fyrradag. Þau vildu láta mig vita að það verður jólahlaðborð næsta laugardag... eða þann 4. des, að sjálfsögðu skelli ég mér, ég var einmitt svo fúl að missa af jólhlaðborðinu hérna. En það verður allavega farið á Brodway að sjá sýninguna Með allt á hreinu... hlakka til :) Það verður gaman að kynnast liðinu almennilega en þarna verð ég bara búin að vinna þarna í 3 daga... ég drekk bara nógu mikið og kynnist ÖLLUM á einu kvöldi.. tíhí... sé það ekki alveg fyrir mér!

Bloggarar
Litlir bloggarar