Snjókorn falla...
Ji minn eini, ég hélt að ég myndi aldrei komast heim úr vinnunni í gær. Ég lagði af stað úr vinnunni (fyrir þá sem ekki vita vinn ég í bankanum á Hótel Sögu) kl. 17 og kl. 17:17 var ég komin út að Þjóðminjasafni!!! Ég stökk þarna inn á Stúdenta-eitthvað við hliðina á því og fékk að hringja því ég var ekki með símann á mér. Ég hringdi í Rikka og sagði honum að hann þyrfti að redda Andreu, það væri ekki séns að ég yrði komin upp í Kópavog kl. 17:30! Jæja, og þá hélt ég áfram för minni. Það var allt bókstaflega stopp og maður komst bara ekkert áfram! Kl. rétt tæplega 18 var ég komin að Kringlunni og þá bara þorði ég ekki að keyra lengra, bíllinn spólaði og spólaði þó ég væri bara á jafnsléttu...þannig að ég skellti mér inn í Kringlu og hringdi í mömmu, þá voru hún og Baldur nýbúin að sækja Andreu... og þau komu svo að ná í mig. Ég var svo komin heim kl. rétt að verða 19. Já, ekki nema 2 tíma á leiðinni heim úr vinnunni. Rikki sótti svo bílinn í gærkvöldi og ég lét hann keyra mig í vinnuna í morgun og svo sækir hann Andreu á eftir líka. Við erum bara með einn bíl núna og ég ætla ekki að lenda í svona tvo daga í röð, takk fyrir!!
Bloggarar
Litlir bloggarar