Been there... broke that!

þriðjudagur, nóvember 02, 2004

Return of the ass ;)

Jamm, ég hef fengið rassinn minn aftur vúhúúú :) Ég fór í buxur á laugardagskvöldið sem ég hef ekki notað í nokkrar vikur og VÁ, þær voru alveg níðþröngar á mér... sem þær hafa aldrei verið áður. Ástæðan fyrir því að ég hef notað þær lítið var einmitt að þær voru aðeins of víðar yfir rassinn. Jæja, ég var á leiðinni til Írisar þannig að ég stökk beint á vigtina þegar ég kom þangað... hún sýndi 49 kíló.. sem er 4 kílóum meira en ég hef áður verið. Ég ætla samt að taka þessu með fyrirvara. Vigtin hjá Írisi er kannski ekki alveg nákvæm (vigtin okkar er ekki komin í hús þannig að ég get ekki athugað hana) svo er líka ákveðinn tími mánaðarins að koma sem gæti spilað inn í.... segjum bara að ég sé búin að þyngjast um 2-3 kíló :)

I like it :)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters