Been there... broke that!

mánudagur, nóvember 08, 2004

Ráðalaus :(

Ohh ég er að fara yfir um! Ég sagði upp hérna 21. september og bað jafnframt um að fá að hætta 1. nóvember. Já já, það átti sko að stefna að því en þegar sá dagur fór að nálgast þá talaði útibússtjórinn við mig og sagði að þau gætu eiginlega ekki sleppt mér strax, ég yrði að vera eitthvað fram í nóvember. Hann sagði að við myndum stefna á miðjan nóvember. Ég fór og talaði við hann í síðustu viku og bað um að fá þetta á hreint og ákveða einhvern lokadag... en nei nei... það er bara ekki hægt. Við höldum bara áfram að STEFNA á miðjan nóvember. Halló, það er 8. nóvember í dag, hvað eigum við að stefna á þetta lengi??? Ég er að tryllast, ég er búin að segja við hina vinnuna að þau megi eiga von á mér um miðjan mánuðinn. Ohhhh!!!!!! Get ég ekki bara labbað út hérna...? Geta þau haldið mér hérna? Hjálp... plííís :( Ég er búin að senda starfsmannastjóra fyrirtækisins póst... vonandi getur hann hjálpað mér!!

Ég get ekki beðið eftir að komast í ræktina á eftir til að fá útrás fyrir reiðina og pirringinn. Við olgur ætlum í Body step í dag í staðinn fyrir Body pump... það hljómar vel. Mig hefur lengi langað að prófa það :) Svo ætlar Júlía að kíkja á mig í kvöld, ætlar að fá að sjá upptöku af Idol... kannski kíkir maður svo í kaffi á Catalinu.... who knows :)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters