Been there... broke that!

fimmtudagur, nóvember 11, 2004

Og sagan heldur áfram...

Já, já. Ég sem hélt að óförum mínum væri lokið. Nei mér skjátlaðist!! Það byrjaði á því að við sváfum yfir okkur í morgun, how great! Ég sef ALDREI yfir mig, það er bara eitthvað sem ég geri ekki. Ég er alltaf vöknuð í síðasta lagi kl 7 þó að ég eigi ekki að mæta fyrr en kl. 9. En jú við sváfum sko yfir okkur í morgun, vöknuðum ekki fyrr en kl. 9:15. Ég orðin kortéri of sein og Rikki tæpum 2 tímum of seinn. Við spruttum á fætur og allt fór á milljón, hringdum í vinnurnar okkar og létum vita, gáfum Andreu að borða, klæddum okkur og hana en vorum svo öll komin á okkar staði kl. 10. Úff, þvílíkt stress og klúður.

Jæja, var sko orðin svöng í hádegismatnum og fór út á bensínstöð að finna mér eitthvað því ég hafði engan tíma til að hugsa fyrir því í morgun. Já, já ég fann mér einhvern ógirnilegan 1944 lambarétt, kanilsnúða og smá nammi, kippti einu Séð&heyrt blaði með líka og rétti afgreiðslugaurnum kortið mitt. Hann renndi því í gegn og spurði mig svo hvort ég væri búin að tilkynna kortið stolið?!?! Ég hélt nú ekki, hafði notað það seinast bara á leiðinni í vinnuna. Hann sagði að þetta væri því miður vákort og að hann væri skyldugur til að taka það af mér. Ég stóð þarna eins og asni og skildi ekki neitt í neinu en náði að gubba út úr mér að ég væri nú að vinna bara hérna í bankanum við hliðina og myndi nú bara fara þangað og ná mér í pening og koma aftur. Ég gerði það, fór aftur út á bensínstöð og spurði hvort ég mætti nú ekki taka kortið aftur þar sem ég kæmi þarna nánast á hverjum degi og afgreiddi þau í bankanum þess á milli. Nei, það kom sko ekki til greina, rétt skal vera rétt!!! Ohhh hvað ég var pirruð. En ég er búin að redda þessu núna, það er búið að opna kortið fyrir mig aftur, ég þarf bara að fara að sækja það í kaffinu mínu á eftir. Get ekki sagt að ég hlakki til að feisa þetta lið þarna aftur, var frekar pirruð við þau áðan....


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters