Been there... broke that!

laugardagur, nóvember 06, 2004

Loksins!!!

Það var mikið að mér tókst að blogga. Alltaf þegar ég hef ætlað að skrifa nýja færslu þá kemur upp error :( En jæja, þetta er ástæðan fyrir því að ég hef ekki bloggað í óratíma. Ég skellti mér í spinning tíma í Sporthúsinu í gær. Við Maja mættum bara tvær og tókum vel á því. Eftir ca. 5 mínútur þá var ég svo búin í rassinum og klofinu að ég ætlaði bara að hætta og fara fram á bretti en ég vilidi ekki vera spinning-lúði svo ég píndi mig áfram, eftir smástund var maður bara orðinn dofinn á þessu svæði þannig að það breytti engu... mér fannst þetta samt geðveikt erfitt sko, líka ekkert búin að fara í ræktina síðan á mánudaginn... búin að vera lasin. Við sjáum til hvort ég leggi í þetta aftur ;)

Í gærkvöldi kom tengdamamma í mat. Ég eldaði Tacos sem sló í gegn ofkors ;) Svo var glápt á Idol og kjaftað... voða notó. Hildur var að vinna hérna uppi í Lindarsól og var búin upp úr kl. 23. Ég skellti mér þá aðeins með henni í kaffi og slúður en stoppaði stutt.... enda ennþá hálfslöpp.

Kósíkvöld framundan, stelpunum verður komið í rúmið um kl. 20 og þá sökkvum við okkur niður í snakk, nammi og kók mmmmm það byrjar mynd á Stöð 2 klukkan rúmlega ellefu sem heitir A league of their own og ég dýrkaði þessa mynd þegar ég var unglingur. Hlakka ekkert smá til að sjá hana aftur :)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters