Leti og aftur leti...
Vá, ég bara verð að segja að ég man ekki eftir annarri eins letihelgi. Andrea var hálfslöpp á laugardaginn þannig að við héldum okkur bara inni. Misstum meira að segja af 2 afmælum. En vá hvað við lágum bara í leti í staðinn... við Rikki skiptumst eiginlega á að liggja inni í rúmi. Ég fékk að sofa til 12, þá lagði Rikki sig. Ég vakti hann kl. 15 og fór sjálf að sofa og svaf til kl. 17. Ég drattaðist fram úr rúminu upp úr kl. 18 og fór að gefa börnunum að borða. Hildur kíkti svo á okkur um kvöldið til að horfa á upptökuna frá Idol :)
Það var búið að bjóða mér í partý til Ingós sem var að vinna með mér í Kringlunni og skellti ég mér aðeins þangað á meðan Hildur kíkti í partý rétt hjá sem henni var einmitt boðið í. Það var fínt, ég var nú bara edrú og róleg.... eiginlega sökum leti ;) En það var gaman að hitta gamla hópinn aftur. Hildur sótti mig aftur ca. klukkutíma seinna og skutluðum nokkrum í bæinn í leiðinni. Vá, þarna var ég orðin þreyttasta manneskjan í heiminum, enda búin að sofa svo lítið eða þannig ;) Já, ég fór sko heim og rotaðist um leið... þá var kl. að verða 2.
Lá svo hálfdottandi uppi í sófa í allan gærdag.... já reyndar tók ég svo dugnaðarkast seinnipartinn. Rak Rikka út með Andreu og þreif íbúðina. En fyrir utan það.... baaaarrraaaa leti!!! ;)

Bloggarar
Litlir bloggarar