Been there... broke that!

miðvikudagur, nóvember 10, 2004

Þetta er orðið ótrúlegt....

Já... ég klessti á bíl í morgun. Þetta var sem sagt rúmlega 7 í morgun og ég var að skutla Rikka í vinnuna. Við stoppuðum á bensínstöð. Ég fór í þjónustu (að sjálfsögðu) og beið eftir að einhver kæmi en það kom enginn þannig að Rikki sagði mér að fara bara í sjálfsafgreiðslu og hann skyldi dæla. Jebb, mér leist vel á það svo að ég bakkaði......... beint á bílinn sem var fyrir aftan mig!!! Arrrrrrg.... ohhhh ég var svo pirruð! Ég skipaði Rikka að fara út því ég var klædd eins og hálfviti. Ég var í glötuðum Thai buxum, svona alltof stuttum og víðum og ekki nóg með það heldur náðu gulu fínu apanáttbuxurnar mínar niður fyrir þær... ég var nefnilega í þeim innanundir ;) Ohh jæja, það sást nú svo sem ekki neitt á hinum bílnum, númeraplatan datt reyndar af en ekkert annað. Díses, þetta er ekki eðlilegt! Síðan við fluttum í Lækjasmárann erum við búin að lenda í 3 umferðaróhöppum. Byrjaði á því að ég klessti á í órétti kvöldið sem við fluttum, svo var keyrt aftan á Rikka í síðustu viku og svo þetta í morgun..... fyrir utan að Lancerinn er búinn að bila þrisvar síðan við fluttum líka. Jæja, allt er þegar þrennt er.... er það ekki? :)

Já og ég talaði við yfirmanninn minn í fyrradag. Ég fæ að hætta föstudaginn 26. nóvember og byrja svo á hinum staðnum 1. desember. Ég er ekki sátt en svona verður þetta þá bara að vera... ég vil ekki búa til vesen því ef ég labba bara út þá eiga þeir rétt á að frysta launin mín og það viljum við ekki svona rétt fyrir jólin, nei takk!!! Þannig að.... 13 vinnudagar eftir hérna... I´m counting!


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters