Djammhelgi
Vá, hvað það er langt síðan ég djammaði seinast. Maður er orðinn frekar ryðgaður í þessu. Það var samt voða gaman að mínu mati, ég held að Júlíu hafi ekki fundist jafngaman og mér því henni fannst við ekki dansa nógu mikið. Æ, mér er yfirleitt alveg sama hvort ég dansa eða ekki, það fer bara eftir skapi. Þetta var kvöld var meira svona sitja, drekka, hlæja og kjafta stemningin. Fórum á Ara í ögri og hittum þar gamla vina, rosa gaman og allir voru bara að kjafta... ekki dansa. Æ, við dönsum bara næst :) Við hittum reyndar Hall sem var ofurölvi og hellti niður rándýra kokkteilnum hennar Írisar yfir hana alla og svo smallaðist glasið í gólfinu. Íris var frekar pisst út í Hall og skil ég það bara ósköp vel, ég skammaði hann sko!! Ég var komin heim kl. að verða 5, ekkert smá dugleg sko!! Ég man ekki einu sinni hvenær ég sá klukkuna verða svona mikið seinast ;) Ég vaknaði svo með hausverk dauðans á sunnudaginn en var heppin því við vorum á leiðinni í AFMÆLI mmmmmmmm, ég elska afmæli í þynnku. Ég borðaði ca. 2 tonn af heitum brauðréttum, smá köku og svona 6 lítra af kóki... leið sko miklu betur eftir það ;)
Svo er það pömpið góða í kvöld, get ekki beðið. Ég komst ekki seinast því Rikki var að vinna en það verður tekið á því núna. Jæja, back to my boring work..... bara tæpir 10 vinnudagar eftir hérna vúhúúúúú :D
Svo er það pömpið góða í kvöld, get ekki beðið. Ég komst ekki seinast því Rikki var að vinna en það verður tekið á því núna. Jæja, back to my boring work..... bara tæpir 10 vinnudagar eftir hérna vúhúúúúú :D
Bloggarar
Litlir bloggarar