Been there... broke that!

miðvikudagur, nóvember 24, 2004

Bráðum koma blessuð jólin...

Ohh ég komst í svo mikinn jólafíling á leiðinni í vinnuna í morgun. Jólalögin á fullu í útvarpinu og snjór og dimmt úti. Ohh þetta er svo yndislegur tími :) Nú er bara að byrja að fara að baka piparkökur og föndra jólagjafirnar :)

Sáuð þið Survivor á mánudagskvöldið?? GUBB!!! Ég er að verða snarvitlaus á þessum þáttum. Þetta er án efa leiðinlegasta serían til þessa! Ég hélt með Sarge en þá auðvitað var hann kosinn út. Svo á mánudaginn hugsaði ég með mér að það væri þá kannski bara best að halda með Chad núna... en nei, þá er hann kosinn út því Ami BELJA (sem mér finnst fullkomlega óþolandi) stjórnar þessum heilalausu konum!!! Já, ég er pirruð og núna held ég ekki með neinum, spurning hvort maður hætti ekki bara að horfa á þetta. Ég myndi halda með Chris en hann sveik Sarge í þarseinasta þætti þannig að hann má hoppa þangað sem sólin ekki skín!! *pirrrrrrrr*

Svo er það America´s next top model í kvöld - úrslitaþáttur :) Ohhh ég get ekki beðið. Ótrúlegt en satt en þá veit ég ekki úrslitin... það virðast nefnilega allir vita þau!! Núna var Maja reyndar að spyrja mig á MSN hvort ég vilji koma í Body balance kl. 20:45 í kvöld... sem þýðir að ég missi af ANTP... en ég er samt að hugsa um að skella mér. Alltaf hægt að taka modelið upp :)

Kíkti á kaffihús með Júlíu í gærkvöldi - Catalínu - ofkors!! Drakk yfir mig af kaffi og átti pínu erfitt með að sofna fyrir vikið. Vaknaði samt fersk í morgun as always ;) Sit í vinnunni núna og horfi út í loftið því það er EKKERT að gera!! Svona á þetta eftir að vera út vikuna.... ekki kvarta ég....... :þ


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters