Been there... broke that!

föstudagur, nóvember 19, 2004

Brrrrrr brrrrrrr...

Þvílíkur kuldi!!! Ég man varla eftir öðru eins, ég þoli ekki svona kulda. Enda er ég mikill innipúki ;) En góðu fréttirnar eru að við erum komin á elsku Almeruna aftur.... ohh I love it. Það eina sem ég þoli ekki við þennan bíl er útvarpið í honum, ég botna ekkert í því. Stundum virkar það og stundum ekki, óþolandi að geta ekki hlustað á fréttirnar á leiðinni í vinnuna... já ég veit... ég er áttræð ;)

Idol í kvöld... ég man ekki hverjum ég held með sem er í hópnum í kvöld. Æ, maður á ekkert að halda með neinum, bara að sjá hvernig þau standa sig. Júlía ætlar að koma í sína venjubundnu Idol-heimsókn og kannski Hildur og Íris líka, það er óljóst ennþá. Við Júlía förum allavega í okkar vikulegu kaffihúsaferð á Catalínu þegar Idol er búið :) Rikki var að vinna í dýrabúðinni hans Tjörva í nótt og Hildur kíkti í heimsókn til mín í gærkvöldi, við drukkum te og spjölluðum, voða notó. svo fór hún og ég leit á klukkuna og hún var að verða hálfþrjú... je minn eini... ég hoppaði sko beint upp í rúm en er alveg daaauuuð núna :( Fór í bað í morgun sem ég man ekkert eftir... var alltaf að sofna sitjandi!! Hmmm what a pretty picture ;)

Jæja, best að fara allavega að þykjast vera að vinna. 6 dagar eftir hér daddaraddada.... :D


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters