ANTM...
Nei djók... ég ætla ekki að kjafta frá úrslitunum. Ég veit að Maja er t.d. ekki búin að sjá þáttinn og svo er líka spurning með Hildi... maður veit aldrei! Bíð með það í nokkra daga í viðbót.
Þrjár af okkur Olgunum skelltum okkur í Body balance í Baðhúsinu í gærkvöldi. Já... ég veit ekki alveg hvernig mér fannst það... það var allavega mjög spes... mjög rólegt. Stundum voru þetta meira að segja svolítið fyndnar æfingar... maður er svolítið mikið bara að glenna sig allan út ;) En ég verð að segja að þarna fékk maður sko að finna fyrir því hvað maður er í rauninni stirður. Það var ýmislegt sem maður gat ekki gert. En ég er meira en til í að prófa að fara í þetta aftur, þá væri ég líka til í að prófa þetta í Sporthúsinu kannski... maður kannast einhvernveginn betur við það ;) Þið hinar Olgur verðið að koma og prófa þetta með okkur :)
Svo er það bara Idolið á morgun.... ohhhh get ekki beðið :)

Bloggarar
Litlir bloggarar