Been there... broke that!

miðvikudagur, október 27, 2004

Vinnustaður dauðans...

Ég sver það, ég HATA þessa vinnu. Nú er ég búin að vera að vinna í banka í ca. 18 mánuði... en í þessum banka í 2 mánuði og ég hef bara aldrei vitað annað eins rugl!!! Stjórnunin hérna er gjörsamlega út í hött og greinilega allir óánægðir en enginn segir neitt við neinn.... heldur tala bara um það sín á milli á kaffistofunni. Ji minn eini og af því að þetta er svo hrikalega lítill vinnutsaður þá skapar þetta bara enn meiri móral. Þó það hafi ekki alltaf verið besti mórallinn uppi í Kringlu þá var hann samt miklu betri en þetta og það var bara miklu skemmtilegra í vinnunni einhvernveginn. Við vorum öll miklu betri vinir.... æ ég veit það ekki. Ég get allavega ekki beðið eftir að losna héðan, sem verður eftir ca. 3 vikur. (Ég leyfi mér að blogga um þetta þar sem enginn hérna veit af þessu litla bloggi mínu... ég held að þau viti yfirhöfuð ekki hvað "blogg" er!!!)

Ræktin í kvöld vúhúúú... það er mjög skrítið en mér finnst þetta alltaf verða erfiðara og erfiðara.... en samt geðveikt gaman :) Mér finnst rassinn á mér strax orðinn harðari ;) Það er líka gaman að finna hjartað slá hraðar þegar maður er að gera eitthvað gáfulegt.... ekki bara þegar ég er búin að drekka of mikið kaffi muhahahaha ;) Við "Olgurnar" erum meira að segja að hugsa um að bæta við okkur einum degi en það verður fundað um það í kvöld. Við veljum okkur eitthvað rosa sniðugt og skemmtilegt ;)

Bæ í bili....


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters