Tölvunörd :(
Jæja, ég fór að hugsa að það væri kannski tímabært að breyta blogginu mínu þar sem það er alveg nákvæmlega eins og bloggið hennar Maju en hún Kristín er greinilega ekki mikill tölvusnilli. Ég gerði bara eitthvað bull og eyðilagði allt saman. En sem betur fer mundi ég góð ráð Maju og seivaði þetta útlit áður :) Þannig að svona verður það áfram... allavega þangað til einhver tölvuhugljómun kemur yfir mig og ég brillera eitthvað fullt ;)
Sáuð þið 70 mínútur í gær? Úff, ekkert smá fyndið!! Við Rikki lágum í kasti þegar Birgitta Haukdal var í Stjórnun en það var samt ekki jafnfyndið og þegar Eiður Smári var í því í fyrradag. Þetta er algjör snilld og ég er fúl yfir að þættirnir séu að hætta :( Svo var heldur ekkert leiðinlegt að sjá Audda hlaupa á tillanum tíhí... Maja sástu það?
Í kvöld koma tendgó í mat. Ég ætla að elda minn góða Mango chutney kjúklingarétt mmmmm. Svo verður glápt á Idol og Svínasúpuna og mönsjað eitthvað gott ;) Íris ætlar að koma í heimsókn þegar matarboðinu lýkur og verður líklegast kjaftað fram á nótt. Notalegt kvöld í vændum :)
Góða helgi....

Bloggarar
Litlir bloggarar