Tilvonandi vöðvafjall ;)
Hvað haldið þið að ég sé búin að gera?? Sko, reyndar er ég ekki búin að gera neitt en ég er búin að ákveða ýmislegt! Sko, ég er fara í Body Pump í Sporthúsinu á mánudags- og miðvikudagskvöldum frá kl. 19:35 til 20:35. Djöfull líst mér vel á þetta. Ég kaupi mér 3 mánaða kort og bankinn borgar brúsann :o) Ég er sem sagt að fara með Maju og Fjólu sem eru með mér í föndurklúbbi.... sem er nú varla hægt að kalla föndurklúbb lengur stelpur?? Er þetta ekki bara orðinn saumó? Já, allavega... fer með þeim og 2 vinkonum hennar Maju líka. Við erum orðnar skytturnar fimm. Kannski ég dobli líka Júlíu vinkonu með þá erum við orðnar sex, er það ekki betri tala? ;) Ég er orðin svo spennt að ég hefði ekki getað trúað því... Kristín... spennt fyrir að hreyfa sig... ji minn eini!!! En jú... ætla að verða geðveikt mössuð og flott. Magga sem vinnur með mér er að kenna í Sporthúsinu og hún sagði að þetta Body Pump væri mjög sniðugt fyrir mig :)
En nóg um það..... í bili ;)
Sáuð þið Americas Next Top Model í gær. HVAÐ ER MÁLIÐ??? Af hverju reka þau ekki Camille út? Ég er ekki að sjá af hverju hún er þarna einu sinni og hvað er málið með augabrúnirnar? Rakar hún þær af og teiknar nýjar eða?? Dísús, ég gapti bara fyrir framan sjónvarpið í gær. Ég held að ég ætti bara að taka að mér að stjórna þessu.... og líka Idol... og The Apprentice... mér finnst ég allavega yfirleitt vita miklu betur en dómararnir ;)
Jæja, ég á að vera að þjálfa nýju stelpuna sem VONANDI verður til þess að ég geti hætt hér um mánaðamótin vúhúúú :) Farin í það mál.......
Massakveðjur, Kristín ;)

Bloggarar
Litlir bloggarar